Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Hulda Kristjánsdóttir
  • Stađur: Flóahreppur
  • Atvinna: Íţróttakennari
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ
  • Um mig: Ég heiti Hulda Kristjánsdóttir og er 23 ára. Ég bý í Skálateigi ásamt kćrastanum mínum Andra Ţór og dóttur minni Soffíu Náttsól sem er fćdd 2006. Sveitalífiđ er yndislegt og ég gćti hvergi annarsstađar hugsađ mér ađ vera :)

Sumariđ er komiđ, svon'á ţađ ađ vera :)

22. apríl 2007 klukkan 20:54

Já ég held svei mér þá bara að sumarið SÉ komið til að vera. Alveg þvílíkur sumargír hér á bæ. Fuglasöngurinn í sveitinni er líka engu líkur :)

Annars er það að frétta að það er BILAÐ að gera í skólanum, kannski ekki skrýtið þar sem nú er lokaspretturinn á LOKAárinu :)

2. maí er langþráður dagur en þá skila ég lokaverkefninu svo er annar langþráður dagur 11. maí en þá klára ég síðasta prófið og þar með B.S. gráðu í íþróttafræðum (þ.e ef ég næ Glottandi).

Mér finnst ekkert smá skrýtið að þetta sé að verða búið. Þessi þrjú ár hafa liðið alveg ótrúlega hratt og margt búið að gerast á þessum tíma. Mér finnst það hafa verið í síðasta mánuði sem við vorum saman komin (bekkurinn minn) á Laugarvatni og vorum að fara að þreyta ýmis próf fyrsta skóladaginn. Kvíðinn var næstum óbærilegur þegar við áttum að synda, hlaupa 3000m og gera ýmis próf í íþróttahúsinu.
Það er alveg ljóst að maður á eftir að sakna bekkjarfélaga sinna mikið þegar þessu lýkur.

En að öðru. Árlega frænkupartýið verður haldið hér í Skálateigi næsta laugardag. Ég hlakka alveg rosalega til að hitta allar frænkurnar. Vona að sem flestar komist. Ullandi Við æltum að hittast um kvöldmatarleytið og panta mat frá Menam á Selfossi. Svo verður eflaust spjallað, sungið og hlegið eitthvað fram eftir kvöldi eða nóttu Glottandi

Kveð að sinni
HK

Hulda Kristjánsdóttir

Gáta fyrir ykkkur :)

12. apríl 2007 klukkan 22:36
Í gamla daga gat sá lent í fangelsi sem skuldaði öðrum og gat ekki staðið í skilum. Kaupmaður nokkur í Lundúnum varð fyrir þeirri óheppni að skulda okrara nokkrum háa fjárupphæð. Okrarinn, sem var gamall og ljótur, lagði girndarhug á dóttur kaupmanns, sem var gjafvaxta og afar fögur. Okrarinn bauð kaupmanninum samning. Ef hann fengi dótturina félli skuldin niður.


Bæði kaupmanni og dótturinni hryllti við þessu tilboði. Okrarinn lævísi stakk þá upp á því að þau létu forsjónina ráða. Tillaga hans var sú að þau létu tvær steinvölur, aðra svarta og hina hvíta í tóman peningasekk og stúlkan fengi síðan að draga aðra völuna úr pokanum. Drægi hún þá svörtu yrði hún hans. Kæmi sú hvíta í hennar hlut yrðu þau laus allra mála. Í báðum tilvikum átti skuldin að falla niður. Ef hún vildi á hinn bóginn ekki taka þátt í leiknum yrði föður hennar fleygt í fangelsi og hungur og volæði biði hennar.


Með miklum trega féllst kaupmaðurinn á þetta. Þau stóðu úti í garði. Í garðinum var möl úr svörtum og hvítum steinvölum. Okrarinn beygði sig niður til að taka upp völurnar tvær. Stúlkan, með sjáöldrin þanin af hræðslu, sá að brögð voru í tafli því okrarinn lét tvær svartar steinvölur í sekkinn. Okrarinn bauð stúlkunni að draga. Stúlkan hikaði um stund en þá laust niður í huga hennar örugg leið út úr vandanum. Hún ...


Skömmu síðar fór okrarinn vonsvikin. Feðginin voru laus allra mála.


Hvernig mátti það vera?

Hulda Kristjánsdóttir

NEI NEI NEI

16. mars 2007 klukkan 19:35

Ég trúi þessu ekki... var búin að skrifa svaka færslu LOKSINS og svo bara datt allt út þegar ég ýtti á vista..Fýldur 'Eg er frekar mikið pirruð út af þessu pg nenni ekki að skrifa allt aftur en vonandi nenni ég að skrifa eitthvað bráðum....

Pirringskveðja úr Skálateigi

Hulda Kristjánsdóttir

Heppnin loksins međ mér...

18. október 2006 klukkan 18:09
Jæja loksins vann ég eitthvað annað á núinu heldur ern 2 fyrir 1 á videoleigum í RVK. Vann núna 2 fyrir 1 á Red Chili.... um að gera að nýta það einhverntíma þegar maður á leið þar hjá Brosandi Ég bíð samt enn eftir að vinna utanlandsferð enda alveg SJÚK mig langar svo til útlanda... ekki furða í rokinu og kuldanum sem herja á landann þessa dagana. Ég væri alveg til í að fá smá snjó í staðin fyrir þetta helv... rok. Enda allt í lagi að það komi snjór núna þar sem maður er kominn á jeppa Svalur Einhvernveiginn held ég að það séu samt ekki allir sammála mér.

Ég er líka orðin alveg SJÚK mig langar svo á skíði og kemur þá löngunin í snjó aftur upp Ullandi

Við erum að fara á ballí Þorló um helgina, Reiðhallarball með SKÍMÓ. Ég er alveg að deyja úr spenningi enda langt síðan maður hefur farið á eitthvað djamm eins og gefur að skilja. Við systkinin ætlum að hittast heima hjá Gessa bró og hafa gaman... örugglega singstar og læti og vonandi mætir Bjössi með gítarinn... þá er sko fjandinn laus Hlæjandi Mamma og pabbi ætla að passa litlu skvísuna og vonandi að hún verði nú þæg og góð eins og hún er alltaf Saklaus Soffía er svo fyndin þessa dagana.. hún er loksins farin að spjalla á milljón við mann, eitthvað meira en bara eitt og eitt hljóð. Nú spjallar hún alveg út í eitt og finnst alveg sérstaklega gaman að spjalla við bangsana sína. Eini gallinn er sá að hún vill helst spjalla seint á kvöldin þegar það er kominn háttatími. Óákveðinn

Eftir helgi byrjar svo átak. Ætla að kaupa kort í styrk og við systurnar, Anna og ég, ætlum að taka rækilega á því fyrir jólin. Ekki veitir af maður....

Nóg í bili...
Kveðja úr Skálateigi
Hulda Kristjánsdóttir

Skemmtó :)

10. október 2006 klukkan 03:31

Ég stal þessu af síðunni hennar Önnu pönnu og langar endilega til að þið svarið þessu... svo gaman að sjá hvað aðrir hafa um mann að segja :)

1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?

16. Hvaða búðir elska ég að fara í?

Hulda Kristjánsdóttir

Hektor kominn heim

07. október 2006 klukkan 00:01
Jæja þá er eldra "barnið" mitt komið heim.
Já hann Hektor minn lenti fyrir bíl á miðvikudaginn. Hann fór úr mjaðmarlið hægra megin og brunaði Andri strax með hann á dýraspítalann á Selfossi. Þar var hann deyfður og honum svo kippt í liðinn. Dýralæknarnir vildu hafa hann þar yfir nóttina og sjá hvort hann myndi tolla í liðnum en á fimmtudagsmorugninn fór hann 2x úr lið litla skinnið. Við ákváðum þá að reyna aðgerð þar sem liðurinn er festur aftur. Hann fó í aðgerðina í gær og tók hún 4 klukkutíma. Hún heppnaðist vel sagði dýralæknirinn og ég náði í hann áðan. Hann er á verkjalyfjum og fúkkalyfjum og má ekkert hreyfa sig nema rétt til að fara út til að gera þarfir sínar Ég finn ekkert smá til með honum greyinu en núna verður bara að stjana við hann fyrstu dagana svo þetta grói vel. Hann kann líka alveg að láta stjana við sig... vælir um leið og maður hættir að klappa honum :)
En ég vona að þetta grói og hann jafni sig því maðu lítur nú bara á hann eins og barnið sitt.
Hulda Kristjánsdóttir

Í fínu formi...

29. september 2006 klukkan 18:22
Hvað er málið með þáttinn í fínu formi á stöð 2... einhvernveginn efast ég um að margir standi upp og taki allsvakalega á því með gellunum.... Þessi þáttur er samt búinn að vera í gangi í mörg mörg ár... Kannski hann sé bara svo vinsæll eftir allt saman og ég bara sú eina sem ekki tekur þátt Ullandi Mér finnst samt oft mjög fyndið að horfa á þetta... sérstaklega þegar það er taktlaust fólk að sýna æfingarnar (sérstaklega karlarnir) Svalur

Líðandi vika er búin að vera ansi strembin í skólanum. Þurftum að skila alveg heavy erfiðu verkefni í aðferðafræði á þriðjudaginn sem maður var búinn að vera að vinna að í þrjá daga. Svo tók nú ekki betra við eftir að ég hafði skilað verkefninu því þá þurfti að fara beint í að læra fyrir prófi í aðferðafræði og b.t.w var prófið heilar 23 bls... Maður fletti og fletti og alltaf tók ný og ný blaðsíða við. Ég var í 2 tíma í prófinu og held að ég hafi bara aldrei verið svona lengi í prófi (nema kannski í samræmdu prófunum í 10. bekk)

Mér finnst nú ekkert skemmtilegast í heimi að þurfa að vera svona mikið í skólanum... langar eiginlega bara mikið meira að vera að kúra með Soffíu Náttsól og dúllast með hana. En.... ég tók þessa ákvörðun þ.e að klára skólann í vor á réttum tíma og ég held að ég eigi ekki eftir að sjá eftir því þegar þetta verður yfirstaðið. Ég bara verð að nýta sem best tímann sem ég er ekki í skólanum til að knúsa skvísuna. Hlæjandi

Úfff húsið er í svo miklu drasli og drullu vegna tímaleysis í vikunni.. Þarf að fara að bretta ermarnar og gera eitthvað í því... Spurning að taka bara hana Bebbu ofurfrænku til fyrirmyndar og setja Queen í tækið og þá liggur við að húsið verði bara hreint af sjálfu sér Svalur

Munið að commenta ef þið eruð lesa, það er svo gaman að sjá hverjir eru að skoða.
Hulda Kristjánsdóttir

22. september 2006 klukkan 01:41


Sælir kæru lesendur.

Haldiði að ég hafi ekki bara skellt mér í kvennaferð með skólanum mínum í gær.

Hitti stelpurnar í sundlauginni í Hveragerði og fór svo með þeim á Pizza 67. Ætlaði nú reyndar að fara bara heim eftir það en þær náðu að draga mig með sér upp á Laugarvatn. Ég sé sko ekki eftir því. Þetta var alveg svakalega skemmtilegt og ég var bara næstum búin að gleyma hversu æðislegt það er að skemmta sér með þeim skvísum :)

Allt á fullu í skólanum þessa dagana... fullt af LEIÐINLEGUM verkefnum og fyrsta prófið í næstu viku. Er smá kvíðin fyrir prófinu því ég hef svo lítið mætt í þessa tíma en vonandi að það gangi ágætlega. Þessa önn förum við ekki í nein prófi í desember, bara 3 próf yfir önnina og verkefnaskil í desember. Ég er alveg himinlifandi yfir þessu... held bara að ég hati ekki neitt meira en að vera í prófstressi rétt fyrir jólin og komast ekki í neitt jólaskap sökum þess. Núna ÆTLA ég bara að vera skipulögð og vera búin með öll verkefni um 5. desember og njóta svo tímans fram að jólum með litlu snúllunni minni... Ég er strax farin að hlakka til :)

Rosalega er haustið farið að minna á sig. Komið svartamyrkur um 21:00. Alltof stutt í að veturinn komi með sinn snjó og kulda... Hvað varð um sumarið... tíminn bara hvarf frá mér. Kannski ekkert undarlegt þar sem sumarið var verulega viðburðaríkt hér á bæ. Fluttum inn og eignuðumst litlu prinsessuna hana Soffíu Náttsól :)

Segjum þetta gott í bili
Verið hress, bless og ekkert stress :)
Hulda Kristjánsdóttir

Ţar sem englarnir syngja sefur ţú...

19. september 2006 klukkan 15:56
Bryndís Eva litla frænka mín, litli engillinn, litla prinsessan og sólargeisli þeirra Bebbu og Hjölla var jarðsett í gær.

Athöfnin var einstaklega falleg og margt fólk var saman komið til að kveðja hana litlu Bryndísi Evu í hinsta sinn.

Dagurinn var allur mjög fallegur. Sólin skein í heiði BARA fyrir Bryndísi Evu. Það rigndi alla leiðina í Keflavík en þar var sól og hiti og mjög fallegt veður. Ætli Bryndís hafi ekki bara ekki valið þennan dag  frekar en fimmtudaginn eins og til stóð en þá var rok og rigning.

Þessi litla yndislega stúlka hefur snert okkur öll og sýndi okkur oftar en einu sinni hversu sterk og ákveðin hún var. Hún lét hinar ýmsu hindranir sem vind um eyru þjóta í sinni erfiðu baráttu.

Veikindi Bryndísar Evu hafa fengið margt fólk, og þar á meðal mig, til að hugsa um tilgang lífsins.
Hugsa um hvað skiptir máli.
Sennilega á það við um allt of margt fólk að það veit ekki hvað það átt hefur fyrr en misst hefur.

Elsku litla frænka. Hvíldu í friði.
Ég veit að þú munt vaka yfir foreldrum þínum og hjálpa þeim að komast í gegnum sorgina.
Þú munt vaka yfir öllum sem þurfa á styrk og hlýju að halda.
Ég er fullviss um það.
Hulda Kristjánsdóttir

Ný síđa

15. september 2006 klukkan 22:14
Jæja og jæja

Nú er hún Hulda komin með nýja síðu í einhverri von um að verða allt í einu rosalega dugleg að skrifa fréttir :)

Helstu fréttir af familíunni.....

Er byrjuð í skólanum á Laugarvatni og það dembast alveg endalaus verkefni yfir mann strax.

Soffía Náttsól er algjör engill og stækkar mjög hratt (www.barnanet.is/bumbugullid).

Hundurinn Hektor er orðinn RISAstór og tekur því vel að vera orðinn "stóribróðir". Liggur bara hjá vöggunni og vagninum til að vernda litlu skvísuna.

Andri er kominn í fæðingarorlof svo að hann geti verið með prinsessunni á meðan ég skelli mér á Laugarvatn dag og dag.

Húsið er nokkurnveginn tilbúið (bara eftir að ganga frá bílskúrnum) og við sváfum fyrstu nóttina 24. júní sl. Okkur líður alveg rosalega vel hérna og höfum það voða gott. Ég er búin að setja inn nokkrar myndir af villunni undir "myndir" en þeir sem vilja sjá það betur verða bara að skella sér í heimsókn við tækifæri Hlæjandi
Læt þetta duga svona fyrsta daginn...

Kveðja úr Skálateig
Hulda
Hulda Kristjánsdóttir